This is my life as we know it ;)

Þið segið það

02.04.2007 17:38:30 / massa

ÉG ER HÆTT HÉRNA

Já ég gefst hér með formlega upp á blog.central. Færslunar mínar týnast vilt og galið og strokast út þó ég sé búin að vista þær og ég veit ekki hvað og hvað.  En ekki örvænta ég er strax byrjuð að blogga á slóðinni massaanna.bloggar.is endilega kíkjið við

 

 


» 0 hafa sagt sína skoðun

08.02.2007 11:57:16 / massa

Sorry mi amigos

Sorry krakkar mínir ég er bara búin að vera endalaust löt þessa dagana. Ég rétt nenni að fara í skólann og vinnuna, svo kem ég bara heim og dett ofan í sjónvarpið eða á neopets. Neopets er by the way mest ávanabindandi síða í heiminum endilega kíkið á hana http://www.neopets.com/refer.phtml?username=massa83 

 Ég fór að vísu til Eyja helgina 26-29 janúar í afmæli hjá henni Ásu minni, það var bara gaman. Ég set inn myndir um leið og ég er búin að skrifa þetta blogg. Takk æðislega fyrir frábæra kynningu og æðislegt djamm ástargrjónapungurinn minn. Annars hef ég svo sem ekki mikið að segja. Ég fór í afmæli 20.jan til hans Gests sem er með mér í kórnum og það eru komnar inn myndir þaðan sem hún hjördís tók á símann minn þannig að ég þekki þetta fólk voða lítið. Svo fór ég í bæinn síðasta fimmtudag á tónleika, sem voru mjög fínir, sérstaklega þar sem ég fór með klikkuðu fólki, Rakel, Einari Th, Eydísi og Gunna bróðir. Við létum eins og fávitar í góðu formi bara gaman. Svo er ég að fara aftur í bæinn á morgun því ég ætla að vera rosa góð systir og passa fyrir Nonna svo hann geti farið með Gunna að vinna í dyrunum á styrktartónleikum fyrir hjartveik börn á laugardaginn. Við Ásta ætlum örugglega bara að sameina krafta okkar og skemmta skvísunum saman, það er að segja ef Elísu Krútt er búin að jafna sig á röraaðgerðinni sem hún er að fara í á morgun. Gangi þér vel sætust í heimi. Ef hún verður ekki búin að jafna sig þá reynum við Heiða snúlla að komast af bara tvær hehe.

En ég er eiginlega alveg tóm enda bara búin að vera í eilífu letikasti síðan um áramót hehe. En ég og Rósa erum að vísu alveg að verða komnar með árganginn okkar á hreint og ég missti mig aðeins í gær í að reyna að skrifa eitthvað sniðugt bréf til að senda á alla sem hafa verið með okkur í skóla. En fyrir þá sem ekki vita er frábærasti árgangur sem Eyjar hafa alið af sér frá upphafi (1983 árgangurinn) að fara að halda árgangsmót í sumar. Fjörið verður um jónsmessuhelgina eða 22-24. júní og eru nokkrir hópar innan þessa stóra og æðislega hóps á fullu að undirbúa þetta snilldarfjör sem á eftir að tala um í mörg ár hehe. Ég hvet ykkur að kíkja á síðuna hjá árganginum http://83.einir.com/index.php

En ég segi bara sjáumst seinna krókódílar og ekki missa ykkur í neopets, það er ekki hollt hehe


» 3 hafa sagt sína skoðun

11.01.2007 14:04:52 / massa

PIRRRRRRRRRRR

oki þetta er ekki fyndið talvan mín er í mótmælastuði núna. Var búin að skrifa ritgerð í word til að setja hérna inn og talvan mín ákvað bara að slökkva á word þegar ég var að copya hana. þannig hún er glötuð því ég savaði hana ekki og núna er ég pirruð og nenni ekki að blogga aftur. :(  Og ég er svo pirruð sérstaklega af því þetta er ekki í fyrsta skipti sem þetta gerist að ég nenni ekki að blogga í bráð sorry snúllur en svona er lífið hehe

» 8 hafa sagt sína skoðun

19.12.2006 21:29:11 / massa

Jólin eru bara á næsta leyti

Jæja þá er maður bara búin með þessa fyrstu önn í FSu og náði henni með glæsibrag ein sexa, tvær sjöur, tvær áttur og ein nía. Annars er maður bara að hanga þessa dagana, ég er að vísu á næturvöktum núna er að fara á nr 2 af þrem í nótt sem er bara ágætt svo er vikufrí yfir jólin. Er búin að skreyta og taka til fyrir jólin þannig að það er bara aðeins smá sóp yfir og uppvask eftir áður en maður fer til Eyja. Mamma og pabbi komu í smá heimsókn síðustu helgi, það var mjög fínt, var farin að sakna þeirra. Þau voru hjá okkur aðfaranótt laugardags og svo voru þau að leika ömmu og afa í höfuðborginni á laugardaginn. Við systkinin kíktum aðeins í borgina og laugardagurinn endaði á því að öll familyjan borðaði saman heima hjá Ástu og Natani sem var mjög fínt. Svo er það bara að klára að pakka inn gjöfum og fara með og ná í einhverjar gjafir austur til Ólínu og co og ná í pakka til Dísu frænku sem eiga að fara til Eyja. En eins og þið sjáið hef ég ekkert að segja er eitthvað tóm í hausnum, þannig að ég ætla að hætta þessari færslu og segi bara sjáumst seinna krókódílar.

» 4 hafa sagt sína skoðun

07.12.2006 20:36:41 / massa

Dagavilt hehe

Oki ég viðurkenni að á morgun kom soldið seinna en venjulega. Ég er bara búin að vera endalaust löt síðustu daga, svo var próf og vinna og gestir og lalalalalala. En það sem er helst að frétta er að ég er búin með fyrsta prófið af þremur. Tók próf í tónlistarsögu á mánudaginn og gekk bara þrusuvel. Svo er próf í heilbrigðisfræði á mánudaginn og í spænsku á þriðjudaginn svo er jólafrí í skólanum þangað til 8.janúar held ég. Svo er bara vinna framundan á að vísu ekki eftir nema einhverjar 6 eða 7 vaktir fram að jólafríinu mínu sem er heil vika :) Fer til eyja á Þorláksmessu, kemst ekki fyrr, kórinn syngur nefnilega á útskriftinni í Fsu sem er 22 og annan. Svo fær Gunni heldur ekki frí fyrr en daginn fyrir Þorláksmessu þannig að við ákváðum bara að fara saman með fyrri ferð þá. Hittumst sem sé öll hress og kát á Þorláksmessu, eins gott að vinkonur mína gefi sér tíma fyrir mig hehe. En ég fer ekki aftur á Selfoss fyrr en með fyrri ferðinni 29. des og verð að vinna á Ljósheimum yfir áramótin, er að spá hvort ég eigi svo að koma aftur til Eyja annan í nýári og vera þangað til daginn fyrir þrettánda, en ég er ekki viss ætla að sjá til. Ég og Gunni fórum í bæinn á föstudaginn og náðum að kaupa flest allar jólagjafirnar sem er mjög fínt, gott að vera búin að því þá þarf maður ekki að stressa sig korteri fyrir jól. Það var líka svo gaman í Kringlunni því hún Agnes yndi kom með okkur í bæinn og Viðar Snúður kærastinn hennar. Viðar fór að vísu beint í bílatíma þegar hann kom í bæinn þannig að Agnes var bara með okkur. Það var mjög skemmtilegt að hafa hana hún er mjög fín stelpa og við tvær erum búnar að ákveða að fara saman í bæinn á útsölur í janúar, við höfum nefnilega mjög góð verslunaráhrif á hvor aðra hehe. Hey já til hamingju með bílprófið Viðar, hann tók það sko á mánudaginn og náði með glans. Á föstudagskvöldið var ég svo voða góð systir ég passaði Heiðu Rós fyrir Nonna bróðir svo hann og Gunni kæmust á Dr. Spock. Það var mjög fínt, við dunduðum okkur fyrir framan sjónvarpið og Heiða ákvað að taka til í veskinu hennar frænku sinnar mér til mikillar gleði. Það var æði að fylgjast með henni týna hvern einn og einasta hlut úr bæði veskinu og peningaveskinu. Eftir að hún fór að sofa glápti ég á einhvern þátt á stöð 2 sem var söfunarþáttur fyrir UNICEF og auðvitað gat ég ekki horft á þennan þátt samviskulaus og hringdi með hraði í eitthvað númer og núna er ég heimsforeldri og gef 2000 á mánuði til hjálpar börnum með AIDS. Á laugardaginn kíktum við systkinin á laugarveginn með Nonna og Heiðu og keyptum nokkrar jólagjafir í viðbót. Svo átti ég að fara í vinnu í Nóatúni kl hálf 5 og við drifum okkur af stað rétt fyrir 3 svo ég væri tímanlega. En þegar við erum komin að hringtorginu þá er bara búið að loka fyrir alla umferð Austur út af þessu hræðilega bílslysi þar sem 2 létust og við þurftum að fara aftur í bæinn, og ég varð bara að sleppa vinnunni þann daginn. Svo er ég bara búin að vera að slappa af á milli vakta. Í dag dreif ég mig svo loksins í að taka til í íbúðinni er búin að ætla að gera það síðan á mánudaginn.Þreif allt hátt og lágt, vaskaði upp og er búin að þvo 4 vélar og bara 2 eftir, því ég er að þvo mottur og svona. Svo setti ég hreint á rúmið mitt og dreif mig í sturtu eftir allt erfiðið og er núna bara að slappa af í hreinu stofunni minni. Eitt sem ég vill deila með ykkur svona rétt fyrir jól. Eins og allir sem þekkja mig vel vita, þá ákvað ég að fara á Selfoss bara einn tveir og bingó, þekkti engann og ekki neitt. En það er mér finnst frábært við þessa skyndiákvörðun mína er það að mér líður mjög vel á Selfossi, sem kom mér í rauninni frekar á óvart. En ég fíla vinnurnar mínar mjög vel og skólann líka. Enda ekki annað hægt það er svo frábært fólk á öllum stöðum. Krakkarnir sem ég er búin að kynnast í skólanum eru öll æðisleg, það er ekki hægt að hugsa sér betri hóp, enginn er að reyna að vera neitt annað en hann sjálfur og öllum við borðið okkar kemur mjög vel saman. Þannig að ég ætla bara að segja Takk krakkar þið eruð frábær og ég hlakka ekkert smá til að hitta ykkur öll á næstu önn. En núna ætla ég að hætta er að verða komin með heila síðu í Word, ég læri af mistökum mínum við síðustu tilraun að blogga hehe. Sjáumst seinna krókódílar og hafið það gott.

» 3 hafa sagt sína skoðun

30.11.2006 11:15:34 / massa

GRRRRRRR

Núna er ég pirrruð. ég var sko búin að skrifa 3 bls ritgerð hérna inn og þegar ég ætlaði að copy-pastea  hana datt hún út og þess vegna ætla ég ekki að blogga fyrr en á morgun svo ég endi ekki á að henda tölvunni í gólfið sorry krakkar mínir bara næst.


» 3 hafa sagt sína skoðun

19.11.2006 21:28:03 / massa

Myndir

Hæbb komnar nokkrar myndir,þið sjáið þær í Myndir, ýmislegt fyrir neðan FSu-bloggara. Atriðið hasns Gunni í söngkeppninni hjá FSu. Blogga seinna

» 5 hafa sagt sína skoðun

17.11.2006 10:39:33 / massa

Hæ aftur

Vííííííí ég er í geggjað góðu jólafríi, er í fríi frá 8 um morguninn 21.des þangað til kl 16 29.des, en er að vinna um áramótin en það er allt í lagi. Mamma og pabbi eru að spá í að koma upp á land yfir áramótin sem að er bara fínt, alltaf gaman að fá þau í heimsókn, eina er að ég veit ekki alveg hvernig ofninn minn virkar í að elda fullt af mat. Annars hef ég ekki miklar áhyggjur af þessu jólastússi, það er ennþá soldið langt þangað til.

Ég fór austur til Ólínu frænku og co í gærkvöldi, það var rosagaman. Ég gerði meira að segja gagn ég gat hjálpað Sæju að setja lög inn á ipodinn hennar og setti fullt af skemmtilegum lögum á mp3-spilara handa Ólínu. Svo var mér boðið í mat svaka góðan, kjúklingavængir, hrísgrjón, salat og sveppa og laukgums til að setja á hrísgrjónin. Takk fyrir matinn Ólína frænka. Svo fór ég heim með litlu skotturnar mínar, þær eru bara æði. Fyrir þá sem vita ekki hvað ég er að tala um þá eru þetta naggrísirnir mínir sem ég fékk frá Bjóló-genginu. Villimey er hvít með svarta bletti og smá fatlað eyra og Irmelín er svört með smá brúnu í og þær eru báðar loðnar. Þær voru voða góðar og höfðu enginn læti í nótt, þó þær hafi verið smá nojaðar fyrst eftir að ég setti þær í búrið.

En ég hef svo sem ekki meira að segja, ætla að fara út í Nóatún og tékka á því hvort ég geti fengið frí á morgun því Ásta og Elísa þurfa á mér að halda, það er að segja ef ég get reddað bensíni á litla bílinn minn. Það er ekki gaman að vera fátækur námsmaður by the way. 

Sjáumst seinna krókódílar.


» 1 hafa sagt sína skoðun

16.11.2006 14:22:16 / massa

Já ég veit

Hæ krakkar mínir, gaman að sjá ykkur :) Já ég er svona líka kát og glöð í dag, gat sofið til rúmlega 10 því ég þurfti bara að mæta í einn heilan tíma í dag frá 11:20 til 12:40 og svo er bara kór klukkan 4 svaka stuð. Erum farin að æfa jólalög í kórnum enda bara nokkrar æfingar eftir fram að jólafríi og tónleikum og fjöri. Er samt í skólanum núna að drepa tímann með öllu skemmtilega fólkinu sem ég þekki í FSu, miklu skemmtilegra hér en að hanga heima hehe. Eftir kór ætla ég svo að bruna austur í Bjóló og ná í naggrísina mína. Hitti nefnilega Ólínu frænku í gær í Nóatúni og hún sagði að ég mætti ná í þá hvenær sem er. En það sem er helst að frétta er að ég er hætt að vera veik, eg neita að vera veik og ætla ekki að vera veik meira um ævina. Var svo slæm af hósta um daginn að ég vakti hana Rögnu á efri hæðinni einn morguninn, gaman að eiga mig sem nágranna. Ætla einmitt að vera frábær nágranni annað hvort á morgunn eða hinn og þrífa sameingina geggjað vel. Svo er ég líka að spá í að taka íbúiðna mína í gegn líka veitir eiginlega ekki af. Um helgina er ég svo að vinna í Nóatúni, svo á Ljósó á sunnudaginn, og líka í nóatúni. Á morgun verða svo næturgestir hjá okkur, Salka kærastann hans Gunnars ætlar að gista og líka hann Viðar sem er með okkur í kór og er bara frábær gaur hehe. Við erum nefnilega að fara að kórast á föstudagskvöldið en það er leyndó hvar og hvenær. Segi ykkur frá því næst. Hey ég lofaði víst að segja ykkur hver vann 100 sexiest blokes in pop það var hann Justin Timberlake, mér til mikillar óhamingju, hann er alveg sætur en það eru margir miklu meira sexy en hann sorry. En ég er að spá í að hætta hef ekkert merkjó að segja ákvað bara að láta vita að ég væri á lífi. Heyrumst krúttó ppl, ætla að skjótast út á ljósó og gera vinnuskýrslu og tékka hvort ég er í fríi á jólunum eða ekki. sjáumst seinna krókódílar

» 1 hafa sagt sína skoðun

11.11.2006 17:23:27 / massa

VAHVAHVAH

Jæja góðir  hálsar, helgin bara meira en hálfnuð og ekkert merkilegt búið að ske. Mér til mikillar gleði og ánægju var ég komin með hita í gær og er því bara heima að jafna mig eftir að hafa verið slegin niður af kvefinu. En ég get sjálfri mér um kennt, fór alltof geist af stað eftir síðastu veikindi þannig að mér sló niður. En núna er ég bara vafin inn í teppi og geri ekkert nema skipti um stöð á imbanum, fæ mér eitthvað að drekka og sný mér á hina hliðina til að sofna, er að vísu búin að stelast tvisvar niður í kjallara til að setja í vél og taka úr henni enda veitir ekki af.
En það sem er helst að frétta er að Gunnar bróðir stóð sig eins og hetja á söngkeppninni. Ég var ekkert smá stolt af honum, náði að taka allt atriðið hans upp á símann svona til að sýna mömmu og pabba og systkinunum hvað hann stóð sig vel. En keppnin var ekkert smá flott vona að nemó drífi sig að setja inn myndir inn á vefinn songkeppni.com. Það voru 19 atriði í keppninni og hvert öðru flottara, það voru að vísu nokkur sem við Salka vorum ekki alveg að fíla en svoleiðis er það alltaf. En að lokum fór svo að hún Sigrún vann, hún söng lagið beautiful disaster með Kelly Clarkson, ekkert smá flott hjá henni. Til hamingju Sigrún.
Svo átti náttla að vera ball í gærkvöldi en vegna veðurs trúlega var hætt við það, þannig að Gunni bróðir sem ætlaði að fara með henni Sölku sinni endaði á því að þurfa að sitja heima hjá lösnu systur sinni, svaka stuð eða þannig. En krúttið sem hann er þá fór hann út í Snæland, keypti gott að borða, nammi og tók 4 dvd-myndir sem hann vissi að ég gæti haft gaman af og sat með mér í gærkvöldi að horfa á dvd. Svo í morgun var hann vaknaður á undan mér og þegar ég kom fram var hann búinn að taka til í stofunni og fara niður og taka af snúrunni. Svo fór hann út og keypti ostaslaufu handa mér í morgunmat og meira hóstasaft. Takk Gunni þú ert bestur :* :*
En núna er ég bara að chilla fyrir framan imbann eins og ég er búin að gera síðan í gær og læt mér leiðast einni heima. Gunni skrapp sko í bæinn til að fara á tónleika með Nonna bróðir. En ég hef 2 heilar dvd-myndir til að glápa á á eftir, hóstasaft, stepsils og pepsi max til að drepa tímann með. Svo er líka verið að telja niður topp 100 sexy gaurana í poppinu á Smash hits stöðinni, það hlýjar manni örugglega í snjónum og frostinu hehe.
Annars ætla ég að kveðja í bili, það er örugglega ekkert fjör að lesa um lasna mig hehe sjáumst seinna krókódílar og þá skal ég segja ykkur hver var í fyrsta sæti á listanum oki :O)

» 2 hafa sagt sína skoðun

09.11.2006 10:49:43 / massa

Það er snjór

Hæbb, hvað er að frétta?

Hjá mér er allt fínt að frétta fyrir utan kvef dauðans, skólataskan mín er eins og apótek ég sver það, er með strepslils, panodil hot og hóstasaft með mér í skólanum því annars held ég að ég eigi eftir að kafna úr hósta. Vaknaði klukkan 6 i gærmorgun við mitt eigið hóstakast frá helvíti, það var það slæmt að Gunnar bróðir vaknaði og allt. Ég var ekki sátt þannig að ég ætlaði bara að snúa mér á hina hliðina og sofa í amk 1 og hálfan tíma í viðbót. En nei, ég hélt bara áfram að hósta og gat engað veginn sofnað, fann svo loksins stellingu til að sofna í, sat upp í rúminu með bakið við vegginn og vafinn inn í sængina, en þegar ég var búin að finna hana var klukkan orðin korter yfir 7 og ekki hálftími þangað til ég þyrfti að vakna. Þannig að dagurinn í gær var þreyttur dagur. En það gerðist nú ýmislegt annað merkilegt í gær. Á mánudagsnóttina snjóði víst soldið og Selfoss er snævidrifinn. Ég þurfti að fara til Reykjavíkur í gær og viti menn minns gat keyrt alveg sjálf í hálkunni og snjónum og litla krúttið mitt stóð sig svo vel í keyrslunni. Bílinn minn er bara yndi. Svo í kveld er söngkeppni nfsu og Gunni bróðir að taka þátt. Núna er bara beðið spennt eftir kvöldinu, kóræfingu og að komast í bólið þegar þetta allt saman er búið. Það versta við þetta kvef er nefnilega að ég verð endalaust syfjuð alltaf.

En ég er eiginlega alveg tóm í hausnum núna, ætla að fara að horfa á heilalausa snilldarteiknimynd sem heitir Drawn Together og má finna inn á síðunni rapetheweb.com undir cartoon portal. Mæli eindregið með henni. Heyrumst seinna krúttin mín og takk fyrir hjálpina í gærkvöldi stóra systir .


» 2 hafa sagt sína skoðun

06.11.2006 11:10:58 / massa

Týpískt fyrir mig

Oki fyrstu fréttir, Gunnar bróðir varð veðurteptur í Eyjum í gær en kemur vonandi heim núna með fyrri ferðinni, því ég er farin að sakna bílsins míns og hans Gunna líka pínku pons. Þetta er kannski ekki svo merkilegt nema fyrir þær sakir að ég fór að sofa í gær vitandi það að ég þyrfti ekki að hafa áhyggjur af því að Gunnar myndi ekki vakna. Sem er smá nýbreytni fyrir mig hehe. En mín ákvað bara að dissa vekjarann þegar hann fór að hringja í morgun, slökkti á vekjaraklukkunni sneri mér á hina hliðina ætlaði aðeins að blunda í svona 5 mín. En nei, ég hrökk upp klukkan tíu orðin alltof sein í skólann, búin að missa af fyrsta tíma og var að fara að missa af hluta af kóræfingunni. Þannig að ég rauk fram úr klæddi míg í næsta dress, henti hárinu í tagl og út. Þegar ég svo loksins kem upp í skóla alveg að missa andann því ég var að drífa mig svo mikið sitja bara allir við borðið í mestu makindum og í ljós kemur að Stebbi er ekki í skólanum þannig að kóræfingin féll niður og þar af leiðandi líka tónlistarsaga sem ég átti að mæta í eftir æfingu. Svo fer ég að skoða forfallatilkynningarnar betur og sé þá að félagsfræði sem ég átti einmitt að mæta í kl 8:20 féll líka niður, þannig að ég hefði getað sofið samviskulaust til hádegis. En svona er lífið og ég nenni ekki heim aftur því Aygoinn er í Þorlákshöfn að bíða eftir Gunnari. Ég var nefnilega svo góð að lána honum hann til að komast í Gubbólf á föstudaginn en fann svo engann til að skutla mér og ná í bílinn, en svona er þetta ég hef gott af því að ganga svolítið.

Annars er ekkert að frétta af minni, dreif mig í skólann á föstudaginn og mín beið próf og 2 verkefni. Gekk bara ágætlega vel í þessu öllu og fór heim í rosafínu skapi. Fór svo í smá verslunarleiðangur því mig vantaði sparilegan bol. Mér var nebla boðið á slúttið hjá S.S. á föstudagskvöldinu. Verslunarferðin gekk mjög vel fann rosafínan bol og svartar buxur í ZikZak og hálsmen, eyrnalokka og armbandi í stíl í Zensi þannig að ég var rosa pæja á slúttinu. Kvöldið var líka mjög skemmtilegt, mér til mikillar gleði og ánægju þekkti ég bara nokkra þarna og endaði því ekki ein út í horni HEHE.

Hef nú ekki mikið meira að segja í bili. Jú, þeir sem lásu ekki kommentið mitt um kattarskítsskúfferíoið þá leystist það vandamál sjálfkrafa því Ragna sem býr fyrir ofan mig bankaði hjá mér á fimmtudaginn til að láta mig vita að þvottavélin mín væri að missa sig. Hún var svo sæt að slökkva á henni, svo hún myndi ekki springa eins og hún orðaði það, ég spurði hana út í ógeðið ofan á vélinni og hún sagðist hafa þrifið það því þetta hefði trúlega verið eftir hennar kisu. Málið var nebla að kisan hennar hafði fengið sér mús í matinn og hún hefur trúlega ekki farið vel í magann á henni.

Eitt enn. Litli strákurinn minn, nei stóri sæti fallegi og duglegi strákurinn minn er 2 ára í dag. Til hamingju með afmælið Ragnar Orri, Massa saknar þín rosalega mikið og hana langaði ekkert smá að koma í veisluna þína um helgina, en því miður var hún að vinna. Ég lofa að kaupa rosaflottan pakka og gefa þér næst þegar ég kemst heim til Eyja. Knúsaðu mömmu þína, Helgu Björk, Sirrý og Rósu frá mér sætastur. LOVE YOU knúsí knús.

Þeir sem eiga eftir að svara dæminu hér að neðan, endilega drífið í því annars sjáumst við seinna krókódílar Knúsí knús 8)


» 2 hafa sagt sína skoðun

01.11.2006 15:58:25 / massa

Löt og leiðinleg

Ég ætla bara að vara ykkur við þetta verður örugglega neikvætt blogg. Ástæðan er einföld, ég búin að vera lasin heima síðan á mánudaginn og er að deyja úr leiðindum og á eftir amk heilan dag í það, því samkvæmt læknisráði á ég að vera heima á morgun líka amk. Ég ákvað nefnilega að vera dugleg stelpa og fór til læknis á mánudaginn, hún sendi mig síðan í blóðprufu því hún hélt að ég gæti verið með einkirningsótt eða gallsteina en sem betur fer var það hvorugt. Ég er bara með veirusýkingu og á að taka því rólega þangað til hitinn hverfur og mér líður betur. Líður samt greinilega aðeins betur því ég gat farið í sturtu, sett í þvottavél og eldað stafasúpu án þess að þurfa að hvíla mig á milli. Svaka dugleg, því í gær vaskaði ég upp og ég hélt að ég myndi deyja þegar ég var búin að því, mér svimaði og ég þurfti að setjast niður og læti.

Ég ætla að leita ráða hjá ykkur dúllurnar minar. Áðan þegar ég fór niður í þvottahús mætti mér frekar ófögur sjón. Önnur hvor læðan sem býr í húsinu hefur fengið niðurgang ofan á þvottavélinni minni og vélina við hliðina, svaka smekklegt og sætt. Ég á sem sé þrifin á sameigninni en mér finnst ég ekki eiga að þurfa að þrífa þetta því ég á ekki kettina. Á ég að vera voða leiðinlegur nágranni og tala við kattaeigendurnar þvi ég veit ekk hvor læðan þetta var, eða á ég að halda kjafti og þrífa upp viðbjóðin þegjandi og hljóðalaust? Endilega segið mér hvað ykkur finnst.

Annars er voða lítið að frétta héðan af Selfossinu, ég hef náttla ekki hitt fólk (nema lækninn og Gunna bróðir) síðan á mánudagsmorguninn eftir næturvaktina. En ég er búin að vera voða dugleg á netinu hehe og ætla að setja inn soldið sem ég fann á síðunni hennar Ástu systir, endilega svarið þessu líka um leið og þið gefið mér ráð í sambandi við kattarskítsskúfferíoið

Sjáumst seinna krókódílar knús knús og kvefkveðjur

1. miðnafnið þitt:
2. Aldur:
3. Single or Taken:
4. Uppáhalds bíómynd:
5. Uppáhalds lag:
6. Uppáhaldshljómsveit:
7. Dirty or Clean:
8. Tattoo eða göt:
9. Þekkjumst við persónulega?
10. Hver er tilgangurinn með lífinu?
11. Myndiru bakka mig upp í slagsmálum?
12. Myndiru þaga yfir leyndarmáli ef það skipti mig máli?
13. Besta minningin þín um okkur?
14. Myndir þú gefa mér nýra?
15. Segðu eitthvað skrýtið um þig:
16. Myndir þú hugsa um mig ef ég væri veik?
17. Getum við hist og bakað köku?
18. Hefuru heyrt kjaftasögu um mig nýlega?
19. Talaru eða hefuru talað illa um mig?
20. Finnst þér ég góð manneskja?
21. Myndir þú kerya með mér hringinn í kringum landið?
22. Finnst þér ég aðlaðandi?
23. Hverju myndiru vilja breyta í mínu fari?
24. Í hverju sefuru?
25. Kæmiru í heimsókn af tilefnislausu, bara til að chilla?
26. Myndir þú koma á stefnumót ef ég myndi bjóða þér?
27. Ef ég ætti einn dag ólifaðann, hvað myndum við gera?
28. Ætlaru að setja þetta á þína síðu svo ég geti fyllt þetta út?


» 9 hafa sagt sína skoðun

26.10.2006 11:41:29 / massa

Það er kominn vetur

Ok ég ætla að byrja á því að biðja hana Sölku afsökunar á að líkja kórnum okkar við saumavél. Fyrirgefði Salka mín, ég vissi ekki að saumavélar gætu látið svona :lol:. Við erum rosagóður kór og erum líka ýkt skemmtilegt fólk sko.

En að öðru, mér gekk ágætlega í spænskuprófinu í gær þó svo að ég hafi ekkert lært undir það. Ég veit skamm skamm Marsibil. Svo ætlaði ég að vera rosa atorkusöm í gærkvöldi og flýta aðeins fyrir lærdómnum en nei minns festist í Feeding Frenzy 2 og sjónvarpinu. Svo kom Gunný í heimsókn sem var voða fínt af því Gunni var á hljómsveitaræfingu á Stokkseyrarbakka eða einhverstaðar þar í kring. Svo þegar ég var að fara að sofa sá ég að það var byrjað að snjóa mér til mikillar gleði, því ég elska snjó, veit að ég er stórskrýtin en mér finnst snjór eitthvað svo rómó. Þannig að mín fór í bólið með gleði í hjarta og von um að það væri allt hvítt yfir þegar ég vaknaði. En NEI það var ógeðslegt slapp og rigning úti, ömurlegt. Maður varð rennandi í fæturnar bara að því að labba frá bílastæðinu og inn í skóla í morgun. Og það er ekki eins og það sé verið að eyða offjár í kyndingu í blessaða skólahúsinu, sokkarnir mínir og úlpan eru rétt að þorna núna síðan ég kom í morgun. Þannig að mér er öfga kalt og til að bæta gráu ofan á svart er ég að fá kvef amk finnst mér það. Er með hor í nös og hnerra og ég er að bilast því mér klæjar svo í nefið.

En að jákvæðari hlutum, verð að hætta að vera svona neikvæð :haha: Það er frí í skólanum á morgun og á mánudaginn, bara kósý að geta sofið út á morgun kannski mar geri eitthvað skemmtó í kvöld. Er að spá í að kíkja í Reykjavíkina og heimsækja Ástu systir og Co en ég er ekki viss ætla að sjá til með færðina. Er ekki alveg tilbúin að keyra heiðina í hálku og snjó, veit heldur ekki hvað litla dúllan mín getur, hef ekki keyrt hann í hálku eða snjó. En það kemur í ljós, kannski horfir mar bara á góða mynd og hefur það kósý. Svo er vinna annað kvöld, á laugardagsmorguninn og næturvaktir aðfararnótt sunnudags og mánudags. Aldrei þessu vant get ég farið heim af næturvakt á sunnudegi og farið að sofa í staðinn fyrir að þurfa að mæta hress og kát í skólann strax eftir vaktina. Þvílíkur munur ha!!!

Kannski notar maður svo tímann ef maður hefur einhvern aukatíma og byrjar að læra undir prófin í Félagsfræði og tónlistarsögu sem eru í næstu viku. Eins gott að maður verði duglegur að læra og nái þeim, má ekki skemma hvað mér er búið að ganga vel að undanförnu hehe. Nei, í alvörunni, ég átti ekki von á að mér gengi svona vel amk ekki þessa önn. Því þetta er allt öðruvísi en í Eyjum og miklu fleiri krakkar og ég verð að viðurkenna að það eru gerðar miklu meiri kröfur hér en heima. Þannig að ég átti alveg von á að þetta yrði svaka sjokk fyrir mig og ég ætti eftir að vera lengi að ná í skottið á hinum, en það gekk bara miklu betur en ég átti von á sem betur fer.

En ég ætla að hætta að röfla og einbeita mér að því að læra um kynsjúkdóma í heilbrigðisfræði. Sjáumst seinna krókódílar Knús knús.


» 3 hafa sagt sína skoðun

24.10.2006 21:31:00 / massa

Hvað er málið með ótillitssemi í umferðinni ?

 Ok ég vill byrja á því að venta soldið. Ég var að keyra til Reykjavíkur í morgun sem er svo sem ekki frásögu færandi. Ákvað að nýta tímann því ég er bara í fyrsta og síðasta tíma á þriðjudögum og erindast aðeins í borginni. Ég er bara að keyra í rólegheitunum með góða tónlist í græjunum í gúddí fíling, þegar jeppi kemur alveg í rassgatið á mér rétt eftir að ég er komin upp kampana. ( BTW ég er að keyra á rúmlega 90). Svo þegar við komum að tvöföldu akreinunum fyrir ofan Litlu kaffistofuna ríkur hann fram úr mér á milljón, einn greinilega að drífa sig. Þegar ég er svo komin niður brekkuna þá sé ég að það er sjúkrabíll fyrir aftan mig með kveikt á sírenuljósunum og ég auda fer út í kannt svo hann komist framhjá, en brjálaði jeppinn keyrir bara áfram á milljón og er ekkert að hleypa sjúkrabílnum framhjá fyrr en hann kveikir á sírenunum og læti. Þá fer jeppinn út í kannt á milljón með þeim afleiðingum að risagrjót lendir í framrúðunni hjá mér og það kemur sprunga í hana. Skemmtilegt eða þannig. Mín hringir náttla beint í fagmenninna í fjölskyldunni og spyr hvað hún eigi að gera og þegar erindum mínum í höfuðborginni er lokið er ferðinni heitið beint í TM á Selfossi til að tilkynna rúðubrotið. Auda var þetta svo minnsta mál þær sendu bara beiðni á verkstæði og þeir pöntuðu nýja rúðu sem kemur í byrjun næstu viku. En ég er ennþá að ná mér yfir dónaskapnum í jeppanum, hver víkur ekki fyrir sjúkrabíl sem er greinilega á hraðferð og örugglega með einhvern slasaðan eða veikan í bílnum. Eins og snillingurinn hann Viðar sagði ég OMGaði bara.
En að öðrum og skemmtilegri hlutum. HELGINNI !!!!! Hún var í einu orði sagt frábær. Ég skemmti  mér svo vel, allir tónleikarnir voru hittarar og fólk var víst bara mjög ánægt með þá. Föstudagstónleikarnir á Hvolsvelli voru soldið sér á báti fyrir okkur systkinin því Dísa frænka, Gunni frændi, Ólína og krakkarnir voru á meðal áhorfenda.Það var æði að hafa einhvern sem mar þekkti í salnum, gaf manni auka kraft. Svo voru laugardagstónleikarnir enn ein snilldin, allir geggjað ónýtir eftir hina tónleikana en við urðum að gefa allt í botn því það voru örugglega á milli 80 og 100 manns þarna eða eitthvað. En þetta gekk allt eins og  saumavél hjá okkur og fólk missti sig í fagnaðarlátum. Svo var það náttla laugardagskvöldið. Það er langt síðan ég hef farið í svona mikið snilldar partý, það voru drykkjuleikir og læti. Að vísu hefði ég kannski átt að sleppa þeim því þegar ég stóð upp frá broðinu eftir leikina sveif svona svakalega á mig og ég var allt í einu orðin Massa FULLA. En það var bara gaman, ég Gunný og Ólöf skelltum okkur svo á Pakkarann þar sem Oxford var að spila og það var dansað fram á nótt. Bara gaman. Takk fyrir mig krakkar. :) Annars er mest lítið að frétta, endalaust mikið að læra eitthvað og mar er að reyna að drullast til að gera það, ýkt dugleg, fékk meira að segja 8,5 í munnlegu spænskuprófi í morgun Hola como estas hehe.
En ég ætla að halda áfram að þykjast læra undir kaflapróf í spænsku Hasta Luego amigos.

» 3 hafa sagt sína skoðun

Síður: 1 2 3 4
Klukkan